Tíu bestu Sæluvikulögin 2011
Nú fer að styttast í Dægurlagakeppnina sem haldin verður í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudagskvöldið 6. maí nk. og spennan magnast að fá að heyra þau 10 lög sem komust í úrslitakeppnina. Kynnar kvöldsins verða leikararnir Björgvin Franz og Jói G. Tíu lög munu keppa um titilinn Sæluvikulagið 2011 og verður það valið af dómnefnd skipaðri fagfólki úr tónlistarlífinu og áhofendum í sal en einnig verða glæsileg tónlistar- og skemmtiatriði á milli laga.
Að lokinni keppni hefst dansleikur með Magna Ásgeirs, Siggu Beinteins og Von ásamt Einari Braga saxasnillingi og gestasöngvarar munu bætast i hópinn um nóttina.
Hér fyrir neðan er hægt að heyra þau 10 lög sem munu keppa til úrslita.
Söknuður Söknuður - Söngur Helga Möller
Íslandið mitt Íslandið mitt - Söngur Anna Kristín Brynjólfsdóttir
Sæluvikan léttir lund Sæluvikan léttir lund - Söngur Guðmundur R Gíslason
Ég elska þegar sólin skín um Skagafjörð Ég elska þegar sólin skín um Skagafjörð - Söngur Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Bara Bara - Söngur Sorin og Victoría Lazar
Lítið augnablik Lítið augnablik - Söngur Kristján Gíslason
Sunna Sunna - Söngur Davíð Smári Harðarson og Stefanía Svavarsdóttir
Orðlaus á ný Orðlaus á ný - Söngur Guðmundur Rafnkell Gíslason
Flottastur Flottastur - Söngur Róbert Óttarsson
Eitt sumarkvöld Eitt sumarkvöld - Söngur Már Elíson og Helga Möller