Sala hafin á tjaldstæðum með rafmagnstengingu á Landsmóti hestamanna
Sala á tjaldstæðum með rafmagnstengingum á Landsmóti hestamanna á Hólum 2016 er hafin. Samkvæmt vef Landsmótsins er um að ræða afmarkaða reiti, 7x10 metrar að stærð og hverjum reit fylgir ein rafmagnsinnstunga. Allir gestir mótsins hafa aðgang að almennum tjaldstæðum mótsins, en þar verður ekki hægt að bjóða upp á rafmagnstengi.
Á vefnum kemur fram að tjaldstæði með rafmagnstengingum séu seld í gegnum sama sölukerfi og aðgöngumiðar á mótið, hjá tix.is og á heimasíðu Landsmóts, landsmot.is. Þar geta áhugasamir gestir keypt sér aðgang að reit sem bíður þeirra þegar á mótið verður komið. Verð fyrir þessa þjónustu verður óbreytt frá síðasta Landsmóti, kr. 17.000 fyrir afnot af tjaldstæðareit með rafmagnstengingu á mótinu.
Nánari upplýsingar má finna á vef Landsmóts hestamanna 2016.