Töluvert tjón þegar sjóðandi heitt vatn flæddi um kjallara
feykir.is
Skagafjörður
31.03.2015
kl. 10.44
Sjóðandi heitt vatn flæddi um kjallara Menningarhússins Miðgarðs í Varmahlíð aðfaranótt fimmtudags. Að sögn Stefáns Gísla Haraldssonar rekstaraaðila menningarhússins er verið að meta tjónið sem varð vegna óhappsins en ljóst er að það er töluvert.
Óhappið átti sér stað þegar þrýstiventill í inntaksgrindinni fyrir heitavatnið sprakk og flæddi þá um 95°C heitt vatn um allan kjallarann.
„Sem betur fer sluppu efri hæðirnar, tjónið einskorðaðist við kjallarann þannig að húsið er starfshæft þó kjallarinn sé í lamasessi,“ segir Stefán Gísli í samtali við Feyki. Hann bætir við að það sé í þökk brunavarnakerfisins, sem gerði vart við óhappið, að ekki varð meira tjón.