Tombólu til styrktar Magga
Stúlkurnar Anna Sóley, María Dögg og Oddný Sara fengu þá frábæru hugmynd að vera með tombólu til styrktar Magnúsi Jóhannessyni, sem lenti í alvarlegu vinnuslysi í júnímánuði.
Tombólan var í Skagfirðingabúð og söfnuðust 5258 kr. sem þær lögðu inn á styrktarreikning Magnúsar. „Við áttum bara helling af dóti sem við vorum hættar að leika með og fengum þá þessa hugmynd.“ sögðu stúlkurnar.
Þess má geta að styrktarreikningur Magnúsar er 0161-15-550279 kt. 110468-3429.