Tónleikar til heiðurs Erlu Þorsteins

Erla Þorsteinsdóttir var ein vinsælasta dægurlagasöngkona þjóðarinnar á árunum 1956-1960 en Erla er ættuð úr Skagafirði. Hún átti stuttan en afskaplega farsælan ferli og söng margar dægurlagaperlur inn á hljómplötur..lög eins og Litli tónlistarmaðurinn...Heimþrá....Þrek og tár og Draumur fangans. Lög sem lifa meðal þjóðarinnar. Ungt tónlistarfólk með hina skagfirsk ættuðu Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm í fararbroddi mun miðvikudaginn 20 apríl heiðra Erlu með því að flytja nokkur af hennar þekktustu lögum á Café Rósenberg.

Auk Hreindísar Ylvu skipa þeir Sigurður Ingi Einarsson trommur, Snæbjörn Gauti saxófónar, Tómas Jónsson hljómborð, Valgeir Daði Einarsson bassi og Yngvi Rafn Garðarsson Holm gítarar hljómsveitina. Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum er Karl Henry eða Kalli.

Þessir ungu tónlistarmenn vinna þessa dagana að geisladisk með lögum sem Erla Þorsteinsdóttir söng á árum áður og mun hann líta dagsins ljós nú í sumar.Hópurinn hefur áður ferðast vítt og breytt um norðurland og haldið tónleika fyrir fullu húsi. Miðasala fyrir tónleikana á Rósenberg er hafin á midi.is

Fleiri fréttir