Tónlistarhátíðin Gæran fór vel af stað
Tónlistarhátíðin Gæran hófst á Mælifell í gær. Fór hátíðin vel af stað með húsfylli og góðri trúbadorstemmningu.
Fram komu Fúsi Ben og Vordísin, Gillon, Sveinn Rúnar Gunnarsson, Dana Ýr, Davíð Jónsson og Binni Rögnvalds ásamt Rakel Rögnvalds. Kynnar og jafnframt skemmtikraftar kvöldsins voru Jóel Sæmundsson og Tryggvi Rafnsson.
Dagskrá föstudagsins hefst svo kl. 20 í húsakynnum Loðskinns í Borgarmýri. Þar verða Sverrir Bergmann og Band, Múgsefjun, Dimma, Biggibix, Valdimar, Morðingjarnir, Hljómsveit Geirmundar Valtýs og Úlfur Úlfur feat. Emmsjé Gauti. Rokkabillyband Reykjavíkur skemmta svo á balli á Mælifelli.