Tónlistarkennsla í 50 ár

Föstudaginn 22. maí kl. 16:00 verður tónlistarskóla Skagafjarðar slitið í 50. sinn.
Af því tilefni verða haldnir sérstakir hátíðartónleikar á sal Frímúrara að Borgarmýri 1, Sauðárkróki.

Flutt verða ávörp, nemendur skólans flytja tónlist, veitt verður úr minningarsjóðum og afhending prófskírteina. „Við bjóðum velunnara skólans og nemendur fyrr og síðar sérstaklega velkomna á þessi skólaslit. Kaffi og tertur eftir tónleika,“ segir í auglýsingu um tónleikana.

Fleiri fréttir