Tónlistarkennsla í Skagafirði í 50 ár

Á þessu ári eru liðin 50 ár frá því að formleg tónlistarkennsla hófst í Skagafirði. Til mikils er að fagna og því verða haldnir hátíðartónleikar og skólaslit í dag, föstudaginn 22. maí, í sal frímúrara Borgarflöt 1 á Sauðárkróki kl. 16. Nokkrar kynslóðir nemenda hafa hafa farið í gengum skólann á þessu tímabili og ótal tónar slegnir, sjálfsagt mishljómfagrir í upphafi, þar til æfingin skapaði marga músíkmeistarana. 

Í tilefni af þessum merku tímamótum biðlaði Feykir til nokkurra þessara fyrrum nemanda skólans til að líta í minningarbanka sína og segja frá þeim tíma sem þeir stunduðu nám við skólann.

Umfjöllunina má finna í Feyki vikunnar en þar minnast m.a.

Berglind Stefánsdóttir flautuleikari og kennari

...Tónlistarskólans í kjallaranum

Svana Berglind Karlsdóttir söngkona minnist

...krakkans sem fékk stjörnur í augun

Sigurbjörn Björnsson kennari minnist

...Indjánadansins sem var alltaf á dagskránni

Heiðdís Lilja Magnúsdóttir lögfræðingur minnist

...dúnmjúku fílabeinsnótanna á Steinway-konsertflyglinum

Fleiri fréttir