Torkennilegt ljós sást á himni
Síðastliðið laugardagskvöld sást torkennilegt ljós á vesturhimni frá Sauðárkróki séð. Ekki hefur enn verið útskýrt hvað þar var á ferð en samkvæmt lýsingu sjónarvotta var ljósið eins og stjarna að lögun en mun stærra, eins og á að giska 3-4 sinnum Venus.
Erla Einarsdóttir var ásamt þremur öðrum í Brekkutúninu á Sauðárkróki og sá ljósið og lýsir því sem rauðappelsínugulu að lit, blikkaði ekki en var á hreyfingu, þó ekki upp og niður heldur eins og á flugi.
-Þetta hreyfðist upp fyrir ofan Molduxann fyrst sem gæti þýtt að það hafi verið á leið í austur frá vestri. Beygði svo í norður eða norðaustur, ekki viss og fór þó nokkuð langt út yfir Tindastólinn eða sjóinn þar sem það svo hvarf. Gæti hafa horfið bak við ský, veit það ekki, það var svo dimmt, segir Erla sem segist hafa haft samband við Veðurstofuna og Flugumferðarstjórn, flugvöllinn á Akureyri og Sigurð Frosta á flugvellinum á Sauðárkróki. -Eftir stendur að þetta er "óþekkjanlegur fljúgandi hlutur". Stórfurðulegt og það hljóta fleiri að hafa séð þetta, en ég myndi giska að það hafi sést í ca. 4 mínútur, segir Erla.
Hjá Lögreglunni á Sauðárkróki fengust þær upplýsingar að tilkynnt hefur verið um ljósagang nokkur laugardagskvöld en ekkert verið gert í málinu eftir að full vissa hefur verið fyrir því að ekki var um neyðarblys eða ljós að ræða.