Trey Hampton kominn á Krókinn
Körfuknattleiksmaðurinn Trey Hampton kom til Sauðárkróks sl. þriðjudag og er hann annar tveggja bandaríska leikmanna sem körfuknattleiksdeildin er búin að gera samning við fyrir tímabilið. Hinn leikmaðurinn er Moe Miller, en von er á pappírum hans í vikunni og hann því væntanlegur von bráðar.
“Trey var þreyttur en glaður við komuna í morgun þrátt fyrir að rafmagnslaus Sauðárkrókur tæki á móti honum,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Trey lék með Georgia State háskólanum og úskrifaðist þaðan árið 2010. Þar var hann á sínu síðasta ári með 8.5 stig að meðaltali í leik og 5.1 frákast. Á síðasta tímabili lék hann í Pro A deild í Þýskalandi, með liði Paderborn og var þar með 9.5 stig að meðaltali og 3.2 fráköst. Hér má sjá nánari upplýsingar um Trey.
Maurice, eða Moe, Miller lék með Georgia Tech háskólanum og útskrifaðist sl. vor. Skólinn lék með ACC deildinni, sem telst vera sterk deild í háskólaboltanum. Á sínu lokaári var hann með 6 stig að meðaltali og tók 2.2 fráköst og sendi 2.4 stoðsendingar á þeim 20 mínútum sem hann lék að meðaltali. Nánari upplýsingar um kappann má sjá hér.