Tröllaborg valin til að taka þátt í könnun
Leikskólinn Tröllaborg á Hólum hefur verið valinn til að taka þátt í könnun á málumhverfi og lestrarnámi barna.
Leikskólinn á Hólum er einn af tíu leikskólum sem eru til skoðunnar og er könnun þessi í samræmi við þriggja ára áætlun mennta- og menningarmálaráðuneytisins um ytra mat í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Ráðuneytið hefur gefið út skýrslu um verkefnið sem finna má hér.
Leikskólinn hefur frá árinu 2009 lagt mikinn metnað í þetta þróunarverkefni sem ber heitið Leikur og læsi og er gert ráð fyrir að það standi yfir í fjögur ár. Verkefnið er unnið í samstarfi við grunnskólann á Hólum, en skólarnir eru í sama húsnæði. Kennari yngri barna við grunnskólann stýrir verkefninu og er það hluti af meistaraverkefni hennar við Háskólann á Akureyri.
„Markmiðið er að setja fram áætlun um læsisnám- og kennslu frá leikskóla til grunnskóla, byggja upp lestrarvænt umhverfi í leik- og grunnskóla og hvetja börn og foreldra til lestrar. Enn fremur er lögð áhersla á að finna sem fyrst þau börn sem eru í áhættuhópi og kanna hvaða áhrif snemmtæk íhlutun og markviss vinna með lestur í leikskóla og á fyrstu árunum í grunnskóla hefur á lestrarnám barna,“ segir á heimasíðu leikskólans.