Truflanir á kalda vatninu á Hólavegi
feykir.is
Skagafjörður
13.03.2014
kl. 10.56
Í dag ætla starfsmenn Skagafjarðarveitna að leita að leka nyrst á Hólaveginum. Það verða því truflanir á rennsli kalda vatnsins meðan á því stendur. Um er að ræða spottann frá Apótekinu að horninu við Freyjugötu.
„Við vonum að þetta valdi ekki miklum óþægindum,“ segir í tilkynningu frá Skagafjarðrarveitum.
