Tryggingar sveitarfélagsins boðnar út

Á síðasta fundi Byggðaráðs Skagafjarðar var samþykkt að endurnýja ekki núverandi vátryggingasamning á milli VÍS og sveitarfélagsins Skagafjarðar.  Samningurinn rann út ú árslok árið 2010 en var í fyrra framlengdur í eitt ár til þess að nýkjörnir sveitastjórnarfulltrúar hefðu tök á því að setja sig nánar inn í tryggingarmál sveitarfélagsins.

Var sveitastjóra falið að óska eftir tilboðum í vátryggingar sveitarfélagins til fjögurra ára.

Fleiri fréttir