Tvær ljósmyndasýningar utanhúss á Hvammstanga

Önnur sýningin er í Kirkjuhvammi. Mynd: Húnaþing.is.
Önnur sýningin er í Kirkjuhvammi. Mynd: Húnaþing.is.

Á vef Húnaþings vestra er greint frá því að settar hafi verið upp tvær ljósmyndasýningar á Hvammstanga sem bera yfirskriftina Kirkjuhvammur og Þinghúsið. Eru þær staðsettar annars vegar í Kirkjuhvammi og hins vegar norðan við pakkhúslóð Kaupfélagsins á Hvammstanga, nærri þeim stað þar sem Þinghúsið stóð áður. Ína Björk Ársælsdóttir, umhverfisstjóri Húnaþings vestra hafði umsjón með þessum verkefnum.

Á vef Húnaþings vestra segir aðsýningarnar lífgi samtímis upp á umhverfið og séu skemmtilegar og fræðandi og miðli þekkingu til bæjarbúa og gesta á einfaldan en upplýsandi hátt. Myndirnar voru fengnar frá Héraðsskjalasafni Vestur-Húnavatnssýslu, Ljósmyndasafni Íslands og eru einnig úr einkaeigu.

Texti er á skiltunum og er hann á íslensku, ensku og þýsku. Myndirnar eru teknar frá miðri 20. öld og fram eftir öldinni. Vilhelm Vilhelmsson doktor í sagnfræði annaðist öflun myndanna og sá um textagerð á íslensku og ensku. Gudrun Kloes sá um þýðingu á þýskum texta. Hönnun og skiltagerð var í höndum Logofex ehf. Þjónustumiðstöð Húnaþings vestra annaðist uppsetningu og frágang. Verkefnið var styrkt af SSNV - Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir