Tveggja tíma bið eftir lögreglu er banaslys varð á Hvammstanga
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í vikunni mættu Páll Björnsson lögreglustjóri Norðurlands vestra og Kristján Þorbjörnsson yfirlögregluþjónn til fundar við byggðarráð og var umræðuefnið verkferla lögreglu þegar bifreið fór fram af bryggjunni á Hvammstanga í síðustu viku og ökumaður lét lífið.
Fóru þær yfir og skýrðu mönnun og verkferla lögreglunnar þegar umrætt slys varð miðvikudaginn 24. ágúst. Lögregla mætti á svæðið tveimur klukkustundum eftir að tilkynnt var um atvikið til 112. Þetta staðfestir Páll Björnsson í samtali við fréttablaðið í dag. Segir hann jafnframt að engir lögreglumenn hafi verið á starfsstöðvunum á Blönduósi vegna skotvopnaæfinga í Skagafirði. Þá hafi verið þoka á leiðinni og framkvæmdir á Blöndubrú tafið ferðir lögreglunnar.
Þá ræðir fréttablaðið við Guðnýju Hrund Karlsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra, sem segir íbúa sveitarfélagsins gríðarlega ósátta við þennan viðbragðstíma. „Björgunarsveitin hefur brugðist vel við þegar til hennar hefur verið leitað og má segja að hún sé hálfgerð löggæsla á svæðinu en þá erum við að tala um að það séu bara fyrirtæki hér í Húnaþingi sem eru að borga fyrir löggæsluna því að þetta eru auðvitað menn sem þurfa að fara úr sinni vinnu,“ segir Guðný Hrund ennfremur í samtali við Fréttablaðið.
Á fundinum lýsti byggðarráð áhyggjum sínum yfir óviðunandi stöðu og fámenni lögreglunnar á Norðurlandi vestra. Var sveitarstjóra falið að gera greinargerð um stöðuna og fá fund með innanríkisráðherra að nýju.