Tvöfalt tap í Reykjavík
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastól í knattspyrnu lék tvo leiki í Reykjavík um síðustu helgi. Á föstudaginn lék lið Tindastóls við ÍR og tapaði þeim leik 3-0. Bjarki Már þjálfari sagði að þetta hafi verið slappur leikur hjá okkar stelpum og þær hafi aldrei komist í takt við leikinn.
Á laugardaginn lék síðan liðið við Fram og tapaði þeim leik 2-0. Bjarki var hinsvegar nokkuð sáttur við þann leik en liðið lék ágætlega oft á köflum.