Um 30 krakkar frá Tindastóli á Kjarnafæðismótinu í körfubolta
Tindastóll sendi alls 5 lið til þátttöku á Kjarnafæðismóti Þórs á Akureyri sl. laugardag en mótið var haldið fyrir minniboltakrakka og skemmtu allir sér konunglega. Auk Tindastóls tóku Þórsarar þátt í mótinu, en einnig komu lið frá Kormáki á Hvammstanga, Smára í Eyjafirði og Dalvík.
Um 30 krakkar tóku þátt í mótinu fyrir hönd Tindastóls og stóðu allir sig mjög vel og voru félagi sínu til sóma. Mikill fjöldi foreldra fylgdi krökkunum og var það sérlega ánægjulegt og sýnir þéttan stuðning foreldra við börn sín í starfinu.
Allir fengu þátttökupening um hálsinn ásamt svitabandi frá Kjarnafæði og grilluðum pylsum voru gerðar góð skil. Þórsarar eiga þakkir skildar fyrir skemmtilegt mót og vonandi halda þeir annað að ári.
Fleiri myndir er hægt að nálgast á Tindastólssíðunni.
/Tindastóll.is