Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra 2016
Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra 2016 voru veittar þann 23. júlí sl. á fjölskyldudegi "Elds í Húnaþingi". Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, kynnti vinningshafa og Ína Björk Ársælsdóttir og Erla B. Kristinsdóttir, fyrir hönd nefndarinnar, afhentu viðurkenningarskjöl og forláta kertalukt. Aðrir í nefndinni eru Sigríður Hjaltadóttir og Þorvaldur Böðvarsson.
Þykir umhverfi þeirra sem verðlaunaðir voru bera þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu og snyrtilegu umhverfi. Viðurkenningar hlutu eftirtaldir:
Hvalshöfði í Hrútafirði fyrir hreinlegt og vel hirt sveitabýli. Ásýnd býlisins er einstaklega snyrtilegt á öllum árstíðum. Eigendur: Róbert Júlíusson og Hafdís Brynja Þorsteinsdóttir.
Brekkulækur, ferðaþjónusta Miðfirði fyrir virka umhverfisstefnu og sjálfbærni við rekstur fyrirtækisins. Virðing fyrir umhverfi og náttúru eru í hávegum höfð. Aðkoma er aðlaðandi og hlýleg þar sem nýting gamalla húsa og nýbyggingar fléttast fallega saman. Eigendur: Arinbjörn Jóhannsson og Claudia Hofmann.
Hjallavegur 12, Hvammstanga fyrir fallega og vel hirta einkalóð. Snyrtileg heimkeyrsla, litskrúðugar plöntur og vel gróinn garður gera lóðina sérstaklega aðlaðandi. Eigendur: Halldóra Ívarsdóttir og Páll Sigurðsson.
Greint var frá þessu á vef Húnaþings vestra.