Umhverfisviðurkenningar í Húnaþingi vestra
Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra voru veittar á fjölskyldudegi Elds í Húnaþingi, síðastliðin laugardag á útisviðinu við félagsheimilið. Að þessu sinni voru veitt verðlaun í fjórum flokkum en dómnefndina skipuðu þau: Erla Björg Kristinsdóttir, Jóhannes Erlendsson, Sigríður Hjaltadóttir og Ína Björk Ársælsdóttir.
þeir sem hlutu viðurkenningar:
MELAVEGUR 14, Hvammstanga. þar hefur verið hugað einstaklega vel að hirðingu lóðarinnar.
GEITAFELL, Vantsnesi. Þar hafa átt sér stað vel heppnaðar og skemmtilegar endurbætur og uppbygging á mannvirkjum og umhverfi.
HALLARTRÖÐ 2. Snyrtileg hesthúsalóð.
BESSASTAÐIR. snyrtilegt sveitarbýli, vel hirt um mannvirki og umhverfi, mikið af gróðri og allt til fyrirmyndar.
Feykir óskar verðlaunahöfum til hamingju