UMSS gallar fyrir Unglingalandsmót
Nú fer hver að verða síðastur að næla sér í UMSS galla en í dag er síðasti séns til að máta þá á skrifstofu UMSS að Víðigrund 4 Sauðárkróki. Þeir sem hafa áhuga á að fá sér búning geta komið við og mátað til klukkan16:00.
-Við erum með tvær týpur af Jako göllum, önnur á 11500kr. og hin á 13000kr., segir Elmar Eysteinsson framkvæmdastjóri UMSS. -Gaman væri að sjá sem flesta í UMSS göllum á Unglingalandsmótinu á Egilsstöðum svo komið endilega og skoðið.
Hægt er að hafa samband við Elmar í síma 4535460 eða umss@simnet.is.