UMSS með silfur í briddsinum á Landsmóti UMFÍ 50+
Briddssveit UMSS krækti í silfurverðlaun á Landsmóti UMFÍ+50 sem fram fór um helgina en Skagfirðingarnir Kristján Björn Snorrason, Jón „Sleitó“ Sigurðsson, Hjálmar Pálsson frá Kambi og Jörundur Þórðarson sem er ættaður af Króknum, skipuðu sveitina. -Ég gæti trúað að það væru ekki margir silfur-hafar eldri en Sleitóinn sem er fæddur 24.04.29, segir Kristján Björn þegar blaðamaður hafði samband við hann í morgun.
Mótshaldarar eru ánægðir með hvernig Landsmótið gekk fyrir sig þrátt fyrir að veðurguðirnir væru ekki alveg hliðhollir þeim en þátttakendur létu það ekki á sig fá og allir voru glaðir og kátir, segir Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Landsmóta UMFÍ 50+ á heimasíðu UMFÍ.