UMSS vill að Sundsamband Íslands verði til ráðgjafar
Fyrirhuguð uppbygging Sundlaugar Sauðárkróks var til umræðu á stjórnarfundi Ungmennasambands Skagafjarðar sl. þriðjudag. Í fundargerð segir að stjórn UMSS óski eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður leiti eftir ráðgjöf frá Sundsambandi Íslands vegna endurbyggingarinnar.
„Því er beint til Sveitarfélagsins Skagafjarðar að leitað verði til Sundsambands Íslands eftir ráðgjöf vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Sundlaugar Sauðárkróks, þannig að mannvirkið nýtist sem best við hefðbundið mótahald s.s. Unglingalandsmót UMFÍ,“ segir í fundargerðinni.
Þá eru fleiri íþróttamannvirki í deiglunni en starfshópur um fjölnota íþróttahús var skipaður í febrúar síðastliðnum. Sigurjón Þórðarson, stjórnarmeðlimur UMSS, segist í samtali við Feyki bera þá von í brjósti að íþróttamannvirki verði sem mest sameinuð til að greiða fyrir samnýtingu bæði á aðstöðu og mannskap.
„Skemmtilegt væri ef hægt væri að koma líkamsræktarstarfsemi sem fram fer í Hreyfingu í tengsl við sundlaug líkt og gert er í; Laugardalnum í Reykjavík og á Blönduósi og víðar,“ sagði Sigurjón.