Undirbúningur fyrir dreifnám í Húnaþingi vestra komið á fullt skrið

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar því að fyrirhugað er að hefja kennslu á framhaldsskólastigi með dreifnámssniði frá FNV í sveitarfélaginu á komandi hausti. Undirbúningur fyrir dreifnámið er komið á fullt skrið en verið er undirbúa skipun ungmennaráðs og finna húsnæði til leigu vegna dreifnámsins.

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur væntingar um að viðbrögð íbúa sveitarfélagsins gagnvart þessu nýja tækifæri til framhaldsskólamenntunar í heimabyggð verði vel tekið og a.m.k. takist að fylla þau 10 nemendaígildi sem gerð er krafa um,“ segir í fundargerð 195. fundi sveitarfélagsins. Verkefnið var loksins samþykkt í desembermánuði sl. í gegnum Sóknaráætlun landshluta 2020 en það hefur haft langan aðdraganda og fjölmargir aðilar komið þar að sl. ár.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra álítur mikilvægt að ungmennaráð verði skipað í sveitarfélaginu m.a. vegna dreifnámsins og var íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að undirbúa skipun þess og leggja fyrir sveitarstjórn tillögu um skipan ráðsins. Sveitarstjóra og oddvita var falið það verkefni að leita eftir samkomulagi við stjórn Félagsheimilisins á Hvammstanga um húsnæði til leigu.

 

Fleiri fréttir