Undirbúningur Jónsmessuhátíðar gengur vel

Undirbúningur hinnar árlegu Jónsmessuhátíðar á Hofsósi gengur vel. Að sögn Kristjáns Jónssonar sem er í Jónsmessunefnd er búist við fjölmenni og verið er að vinna að samkomulagi við veðurguðina. Á hann von á að hvort tveggja gangi eftir.

Hátíðin hefst seinnipartinn á föstudaginn með Firma- og bæjarkeppni Svaða á Hofsgerðisvelli. Þá verður farin Jónsmessuganga á frá Bæ á Höfðaströnd inn í Hofsós, með leiðsögn Hauks Björnssonar. Eftir íslenska kjötsúpu í Höfðaborg geta svo unglingarnir skellt sér í sundlaugarpartý og kvöldvakan verður á sínum stað. Þar koma fram Leikfélag Hofsóss og Aðalbjörg Rósa Indriðadóttir og Hjalti og Lára taka lagið. Guðný Axelsdóttir verður kynnir og ræðumaður kvöldsins.

Á laugardaginn hefst gamanið með knattspyrnumóti á Hofsósvell. Þar verður keppt í 1. deild og úrvaldsdeild. Myndasýning Finns Sigurbjörnssonar rúllar svo á tjaldi í Höfðaborg fyrri part laugardagsins og slegið verður upp tjaldmarkaði. Börnin komast í leiktæki og Svaði stendur fyrir Hópreið. Þá er ótalinn sú sígilda keppni Góðakstur a dráttarvélum að hætti Pardus. Um kvöldið munu svo hljómsveitin Von og Magni Ásgeirs leika fyrir dansi.

Fleiri fréttir