Ungbændaferð í Þingeyjasýsluna

Þann 16. apríl næstkomandi mun félag ungra bænda á Norðurlandi standa fyrir dagsferð í Þingeyjarsýslurnar þar sem ætlunin er að heimsækja ungu sauðfjárbændurnar Ástþór og Svönu í Fjósatungu og Björgvin á Kraunastöðum en þar eru ný fjárhús.  -Á eftir er svo hugmyndin að storma í jarðböðin á Mývatni og taka eins og einn sundsprett að hætti Grettis Ásmundssonar, segir í tilkynningu frá stjórn FUBN.

Rúta mun fara bæði frá Skagafirði og Eyjafirði og kostar farið litlar 1000 kr á mann. Þeir sem hafa áhuga á því að skella sér í Þingeyjasýsluna geta skráð sig á nordur@ungurbondi.is fyrir miðvikudaginn 13. apríl. 

Hér er svo dagskrá sem sett er á með fyrirvara um breytingar.

  • 10:00 Lagt af stað úr Skagafirði
  • 11:30 Lagt af stað úr Eyjafirði
  • 12:30 Komin í Fjósatungu
  • 14:00 Lagt af stað frá Fjósatungu
  • 14:45 Komin í Kraunastaði
  • 15:45 Lagt af stað frá Kraunastöðum
  • 16:30 kaffistopp (Vogafjós/sjoppa?)
  • 17:30 Komin í jarðböðin
  • 19:30 Brottför frá jarðböðum
  • 20:30 Akureyri
  • 22:00 Skagafjörður

Fleiri fréttir