Unglingaflokkur í undanúrslit eftir sigur á Keflvíkingum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
29.01.2014
kl. 10.14
Tindastóll er kominn í undanúrslit í bikarkeppni unglingaflokks í körfuknattleik eftir 83-70 sigur á Keflavík í gærkvöldi en Keflavík er í öðru sæti í þeim flokki. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var nokkuð jafnræði með liðunum en Tindastóll var þó alltaf skrefinu á undan og vann alla fjóra leikhlutana.
Tindastólsstrákarnir leiddu 24-20 eftir fyrsta leikhluta og 47-39 í hálfleik. Jafnt var á með liðunum í þriðja leikhluta og áfram leiddu strákarnir 65-56.
Stigahæstir hjá Tindastól voru þeir Ingvi með 25 stig og Sigurður Páll með 14 stig.
Lið Tindastóls: Ingvi, Agnar, Þröstur, Pétur, Friðrik Stefáns, Finnbogi, Árni, Viðar, Hannes, Sigurður Páll, Friðrik Hrafn og Arnar.