Unglingaflokkur karla með heimaleik í kvöld

Strákarnir í unglingaflokki Tindastóls í körfuknattleik taka á móti Fjölni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í Síkinu í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:15. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls er þátttökuréttur í undanúrslitunum í húfi en þau fara fram í DHL-höllinni um næstu helgi.

Tindastóll lenti í 2. sæti A-riðils og mæta Fjöni, sem endaði í 3. sæti B-riðils. „Það er full ástæða til að hvetja fólk til að mæta á leikinn og styðja strákana til sigurs,“ segir á heimasíðunni.

Fleiri fréttir