Unglingaflokkur sigrar ÍR í framlengingu

Unglingaslokkur Tindastóls í körfu heimsótti ÍR-inga í gær og var hart barist samkvæmt vef Tindastóls en Stólarnir höfðu betur í lokin 98-90. „Barátta allan tímann og hart tekist á á öllum vígstöðum, var jafnræði með liðunum framan af en heimamenn samt skrefinu á undan,“ segir á heimasíðunni.   

Í þriðja leikhluta virtist sem ÍR væru að sigra en þeir voru 13 stigum yfir.  Stólarnir spiluðu sig aftur inn í leikinn og náðu að jafna og því var framlengt. Þá spiluðu strákarnir af mikilli hörku og náði Sigurður Páll að gera 13 stig í röð, þar af þrjá þrista. Þar með var leikurinn í hendi Tindastólsdrengja og sætur sigur staðreynd.

Fleiri fréttir