Unglingaflokkur tapaði naumlega
Unglingaflokkur karla í körfu tapaði naumlega fyrir Keflavík í endurteknum bikarslag liðanna í gærkvöldi sem endaði í 81-83. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hafði úrskurðað að endurtaka skyldi bikarleik, sem Tindastóll hafði áður sigrað 82-70, eftir að Keflavík lagði fram kæru vegna framkvæmd leiksins.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var leikurinn í gærkvöldi spennandi og jafnræði með liðunum nánast allan leikinn. Mikil stemmning var í Síkinu og fjölmargir gerðu sér ferð á leikinn til að sýna strákunum stuðning.
„En eins og segir hér að ofan þá höfðu Suðurnesjamenn þetta undir blálokin og gat þessi sigur þeirra alveg eins lent okkar megin. Strákarnir eiga mikið hrós skilið og er frammistaðan hjá þeim til mikillar fyrirmyndar enda voru þeir að mæta ógnarsterku liði Keflavíkur, sem segir okkur það að við eigum fullt erindi á meðal þeirra bestu því munurinn er nánast enginn á milli liðanna,“ segir á heimasíðunni.