Unglingaflokkurinn með flotta leiki

Unglingaflokkur Tindastóls vann góðan sigur á KR um helgina, 95-72. Drengirnir hafa spilað fimm leiki í vetur og unnið tvo þeirra, fyrst gegn Stjörnunni og nú Vesturbæjarstórveldinu. Þá unnu þeir lið Keflavíkur á dögunum, 83-70, í bikarkeppni unglingaflokks drengja.

KR-ingar byrjuðu leikinn betur í gær en strákarnir komu til baka og leiddu eftir fyrsta leikhluta 27-19. Jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta en staðan í hálfleik var 48-40 Tindastól í vil.

Aðeins dró saman með liðunum í þriðja leikhluta en að honum loknum voru Stólarnir enn yfir, 67-62. Í fjórða leikhluta fór að bera á þreytu í liði KR-inga sem aðeins mættu norður með sjö leikmenn, á meðan þjálfari Tindastóls, Kári Mar, gat rúllað á stórum leikmannahóp. Lokatölur 95-72.

Á heimasíðu Tindastóls segir að á síðustu sekúndunum sáust skemmtileg tilþrif þegar Viðar Ágústsson stal boltanum af KR-ingum, óð með hann upp völlinn og tróð með tilþrifum áhorfendum til mikillar ánægju.

Stigahæstir í liði Tindastóls voru Ingvi með 32 stig, Pétur með 18 og Friðrik Stefáns 18.

Fleiri fréttir