Unglingalandsmót UMFÍ verður á Króknum um verslunarmannahelgina
Skrifað hefur verið undir samning um Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Gunnar Þór Gestsson formaður UMss og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ sjást hér undirrita samninginn.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
„Þetta eru leikirnir sem allir vilja spila“ segir Konni
Síðustu umferðirnar hjá meistaraflokkunum hér á Norðurlandi vestra fara fram á morgun, laugardaginn 12. september. Lið Kormáks/Hvatar mætir Fjölni á Blönduósi og kvennalið Tindastóls hittir fyrir Hauka í Hafnarfirði. Örlög þessara liða eru ráðin en á Króknum er mikið undir þegar Tindastólsmenn taka á móti deildarmeisturum Víðis í Garði. Með sigri eiga Stólarnir séns á að komast upp í 2. deild en þá þarf lið KF að hafa stig af KH á Ólafsfirði. Feykir heyrði í Konna þjálfara.Meira -
Engin verðbólga í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra bauð félögum sínum til fjölmennrar grillveislu í gær. Grillað var úti í hádeginu fyrir utan samfélagsmiðstöðina Glaumbæ sem er til húsa á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Á boðstólum var gómsætt lambakjöt frá Sláturhúsi SKVH á Hvammstanga ásamt tilheyrandi meðlæti og drykkjum. Verðið á krásunum var ekki verðbólguhvetjandi því þátttakendur greiddu aðeins 1.000 krónur og gátu etið að vild.Meira -
Myndasyrpa frá Höskuldi B. úr Auðkúlurétt
Þessar vikurnar er réttað út um víðan völl ef svo má segja. Fjárréttir verða á átta stöðum dagana 12. til 14. september í Skagafirði og réttað verður í Kleifnarétt í Fljótum í dag. Þá verður réttað á sjö stöðum í Húnavatnssýslum 11.-14. september en réttað er í Sveinsstaðarétt í Austur-Hún í dag og hófust réttarstörf þar reyndar kl. 10 í morgun.Meira -
Fjölskylduhlaupið er í dag!
KS og Vörumiðlun vilja leggja verkefninu Gulur september lið. Verkefnið er vitundavakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga, fimmtudaginn 10. september (sem er einmitt í dag), blásum við til skemmtihlaups fyrir alla fjölskylduna! Hlaupið hefst kl. 17:00 við Sundlaug Sauðárkróks og ekkert nema blíða í kortunum, hlýtt og stillt.Meira -
Það verður extra langur æfingaleikur í Síkinu í kvöld
Það má kannski segja að það sé hátíð í bæ á Króknum í dag. Ástæðan vitaskuld sú að þjóðarsport Skagfirðinga, körfuboltinn, vaknar til lífsins eftir sumarfrí. Karlaliðið lætur ljós sitt skína í Síkinu í kvöld í fyrsta æfingaleik haustsins en það er lið Hattar frá Egilsstöðum sem mætir á Krókinn. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Arnar þjálfara Guðjónsson sem svaraði að bragði eins og vanalega. Arnar var spurður út í leik kvöldsins, standið á hópnum og ENBL-deildina.Meira
