Unnið að fjárhagsáætlun Húnaþings vestra 2012
Félagasamtök og einstaklingar í Húnaþingi vestra sem hafa hug á að sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að senda inn skriflegar umsóknir til sveitarstjóra.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá Skúla Þórðarsyni sveitarstjóra Húnaþings vestra á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar segir að verið sé að vinna að fjárhagsáætlun fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir næsta ár og því ber að skila inn umsóknum fyrir 26. október nk.