Unnið að fullnaðarhönnun áfanga A við Sundlaug Sauðárkróks

Mögulegt útlit endurbóta og viðbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks. Mynd: Skagafjörður.is.
Mögulegt útlit endurbóta og viðbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks. Mynd: Skagafjörður.is.

Sagt var frá því á dögunum að breyting yrði gerð á framkvæmdaáætlun hjá Svf. Skagafirði  þannig að 140 milljónir króna yrðu fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki. Aðaluppdrættir liggja nú fyrir og er verkfræðihönnun því komin á fullt skrið með betrumbætta sundlaug.

Á vef Svf. Skagafjarðar segir að verkinu verði skipt upp í tvo áfanga, A og B. Helstu verkþættir í áfanga A verða þeir að búningsklefi kvenna og afgreiðsla verða flutt á aðra hæð, sömu hæð og núverandi karlaklefi er á. Á sömu hæð verður einnig útbúinn minni búningsklefi sem nýtist sem kynlaus klefi og klefi fyrir hreyfihamlaða. Anddyri og aðkomu verður breytt og komið fyrir lyftu frá jarðhæð upp á aðra hæð. Í áfanga B verður byggð viðbygging við laugina að sunnanverðu þar sem áætlað er að verði busllaug og heitur pottur, kaldur pottur og rennibrautir.

Á næstu vikum verður unnið að fullnaðarhönnun áfanga A og stefnt er á að hefja framkvæmdir á fyrstu mánuðum næsta árs, 2017.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir