Unnið að sköpun myrkranna á milli

KÍTÓN er félag kvenna í tónlist og var það stofnað árið 2012 eftir að í ljós kom að einungis 4% tilnefninga til íslensku tónlistarverðlaunanna það árið féllu í hlut kvenna. „Tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist. Þeim tilgangi er náð með auknum sýnileika, viðburðum og stöðugu samtali við tónlistarkonur á Íslandi,“ sagði Harpa Fönn, verkefnastýra og varaformaður KÍTÓN, í samtali við Feyki. Einn slíkur viðburður, svokölluð tónsmiðja, verður haldinn á Hvammstanga dagana 4.-9. september næstkomandi.
Harpa segir aðTónsmiðjan á Hvammstanga sé eitt af stærri verkefnum KÍTÓN á árinu, og miði hún sérstaklega að því að gera störf kvenna í tónlist sýnilegri, og auka tengslanet þeirra og stuðning. „Það er svo dýrmætt fyrir konur að geta komist í burtu frá amstri hversdagsleikans, fara út fyrir sitt venjulega umhverfi, lausar við hversdagslega ábyrgð og skyldur, á nýjum stað, í kyrrð og náttúrufegurð sem óneitanlega veitir innblástur inn í vinnuna,“ segir Harpa Fönn meðal annars í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis, sem kom út í gær.