Uppboð óskilahrossa
Óskilahross sem fram komu í Skrapatungurétt 18. september síðastliðinn verða boðin upp af Sýslumanni Húnvetninga föstudaginn 7. október nk. hafi enginn gefið sig fram og sannað eignarétt sinn á þeim.
Hrossin sem um ræðir eru:
- Jarpur hestur 2-3 v mark fjöður a. h. biti a. v. örmerki 352206000076857 óskráð
- Jörp hryssa veturgömul örlíitil stjarna eins og strik ómörkuð og ómerkt
- Dökkjarpur hestur 2-3 v ómarkaður og ómerktur
- Brún hryssa 4 v ómörkuð og ómerkt , getur verið biti fr. h.
- Jörp hryssa 2-3 v ómörkuð og ómerkt
- Grá hryssa 6 v ómörkuð og ómerkt, kom fyrir í Fellsrétt
Upplýsingar gefur Gauti Jónsson. Sími: 452 4345 eða 865 2421. Netfang:langidalur@simnet.is.
Þá er brúnn hestur sennilega tveggja vetra ómarkaður og ómerktur sem kom í Staðarrétt 17. sept. í vörslu í Stóru-Gröf ytri í Skagafirði. Upplýsingar gefur Jónína Stefánsdóttir í síma 4538208 og 8648208.