Upplýsingamiðstöð áfram í Minjahúsinu
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar hefur falið sviðsstjóra að ganga frá samningi við Byggðasafn Skagfirðinga um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Minjahúsinu á Sauðárkróki sumarið 2011 með sama hætti og gert var síðasta sumar.
Á sama fundi var sviðsstjóra falið að halda áfram hugmyndavinnu varðandi skipulag rekstrar upplýsingamiðstöðvar í Varmahlíð á komandi sumri. Niðurstöður skulu liggja fyrir á næsta fundi.