Upplýsingamiðstöð flyst yfir í KS Varmahlíð

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar hefur samþykkt að gengið verði til samninga við Kaupfélag Skagfirðinga um að landshlutaupplýsingamiðstöð fyrir Norðurland vestra verði staðsett í verslun félagsins í Varmahlíð og að KS annist rekstur hennar.

Þá var ákveðið að leitað verði eftir endurnýjun samnings við Ferðamálastofu um fjármögnun á rekstri miðstöðvarinnar. Samningar þessa efnis skulu liggja fyrir í þessum mánuði.

Ennfremur verði teknar upp viðræður við Alþýðulist um það með hvaða hætti viðskilnaður í núverandi húsnæði mun fara fram, en það hús er í eigu einkahlutafélagsins Ferðasmiðjunnar sem er m.a. í eigu sveitarfélagsins og Alþýðulistar.

Fleiri fréttir