Uppskeruhátíð barna og unglinga
Uppskeruhátíð barna og unglingastarfs Golfklúbbs Sauðárkróks var haldin í síðustu viku. Mætingin var með ágætum og var byrjað á því að taka létt „speed-golf“ mót áður en uppskeruhátíðin sjálf hófst. Að því búnu var farið í golfskálann þar sem allir fengu gjöf frá KPMG og síðan voru veittar viðurkenningar.
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:
Bestu kylfingarnir voru þau Marianna Ulriksen og Elvar Ingi Hjartarson. Mestu framfarir hlutu Telma Ösp Einarsdóttir og Hákon Ingi Rafnsson. Efnilegust voru Rebekka Róbertsdóttir og Arnar Freyr Guðmundsson. Bestu ástundum fengu María Rut Gunnlaugsdóttir og Gísli Kristjánsson. Síðan voru veitt verðlaun fyrir þau sem voru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan. Þau hlutu Anna Karen Hjartardóttir og Bogi Sigurbjörnsson. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir einvígi ( shoot-out ) sem fór fram fyrr í ágúst en þar sigraði Reynir Bjarkan Róbertsson. Þá voru líka veittar viðurkenningar fyrir hraðgolfmótið fyrr um daginn en þar sigraði Brynjar Guðmundsson.
„Það er ástæða þakka öllum kærlega fyrir starfið í sumar. Iðkendur hafa verið til fyrirmyndar og foreldrar hafa verið dugleg að taka þátt í öllu og styðja við sitt fólk. Svo ber að þakka Jóni Þorsteini golfkennara og Telmu Ösp sérstaklega fyrir allt utanumhald í kringum golfskólann í su