Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Þyt
Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Þyts verður með uppskeruhátíð fyrir börn og unglinga, sem tóku þátt í starfinu hjá Þyt síðastliðinn vetur og sumar, laugardaginn 27. október kl. 13-15.
„Veittar verða viðurkenningar fyrir þátttökuna í starfinu, greint frá því hvað verður framundan og tekið við skráningum í námskeið vetrarins,“ segir á heimasíðu Þyts en að venju verður svo gætt sér á kræsingum þar leitað verður til foreldra og aðstandenda barnanna um aðstoð með að gera borðið sem girnilegast.
„Við getum seint þakkað frábær viðbrögð foreldra og forráðamanna við hvers konar aðstoð sem þeir eru fúsir að veita í æskulýðsstarfinu,“ segir á heimsíðunni.
Vonast er til þess að sjá sem flesta sem tóku þátt í hestafimleikunum, reiðþjálfun, Knapamerkjum, sýningum, keppnum og öðru skemmtilegu sem gert var á árinu. Bæði börnin og unglingana og aðstandendur þeirra.