Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu og Hestamannafélagsins Þyts 2015 verður haldin laugardagskvöldið 31. október í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Í boði verður matur, gleði og gaman og hefst skemmtunin klukkan 20:00 stundvíslega en húsið opnar klukkan 19:30.
Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins af Hrossaræktarsamtökum V-Hún: Bessastaðir, Gauksmýri, Lækjamót og Syðri-Vellir. „Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun. Þetta er einstakt tækifæri til að bjóða frúnni eða bóndanum út á lífið. Pússum dansskóna og setjum rúllur í hárið – Þetta verður stórfenglegt,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
Veislustjórn verður í höndum sauðfjárbónda úr Austur-Húnavatnssýslu, Kjartan Óli sér um matinn og á boðstólnum verður: Lamb að hætti Lemmy frænda með kartöflustöppu, bourbonsósu & salati. BBQ kjúklingur með hrísgrjónum, bökuðu rótargrænmeti & kaldri piparrótarsósu. Brownie með kaffinu.
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 28.október. Miðaverð á uppskeruhátíðina er 6.900 krónur matur, skemmtun og ball. Fyrir þá sem vilja eingöngu skella sér á ballið með Trukkunum sem hefst klukkan 23:00, þá kostar miðinn 3.000 krónur. Enginn posi á staðnum og ekki selt gos. Hægt er að nálgast pantaða miða fram á föstudag í Söluskálanum.
Uppskeruhátíð æskulýðsstarfs Þyts
Föstudaginn 30. október klukkan 17:00 verður æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Þyts með uppskeruhátíð fyrir börn og unglinga sem tóku þátt í starfinu hjá Þyt síðastliðinn vetur og sumar. Hátíðin verður í Sveitasetrinu Gauksmýri. Veittar verðar viðurkenningar fyrir þátttökuna í starfinu, greint frá því hvað verður framundan og tekið við skráningum í námskeið vetrarins.