Uppskeruhátíð Tindastóls og Hvatar
Knattspyrnudeild 2. flokks og meistaraflokks Tindastóls/Hvatar verður með uppskeruhátíð og lokahóf laugardaginn 17. september, í hátíðarsal Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Dagskráin hefst kl. 20 og mun þar verða borðhald, ávörp og veittar viðurkenningar. Einnig verður boðið upp á ýmis skemmtiatriði.
Miðaverð er 3000 kr. og hægt er að nálgast miðana á N1 á Sauðárkróki eða hjá stjórn félagsins á Blönduósi. Miðasölu lýkur þann 15. september og er 18 ára aldurstakmark á hátíðina.
Að hátíðinni lokinni verður dansleikur á Mælifelli og fá hátíðargestir afslátt á dansleikinn gegn framvísun miðans.
Nánari upplýsingar er að finna á fésbókarsíðu viðburðarins.