Uppskriftir að hætti Jóhanns Daða
Jóhann Daði er 24 ára Skagfirskur viðburðastjóri, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Foreldrar hans eru Gísli Sigurðsson og Lydía Ósk Jónasdóttir. Jóhann býr fyrir sunnan, nánar tiltekið í Kópavogi, og vinnur sem sölumaður hjá Sýn. Jóhann spilar knattspyrnu með Tindastól og er trommuleikari í þeirri víðfrægu hljómsveit Danssveit Dósa.
UPPSKRIFT 1
Spaghetti carbonara
Eina sem þarf í þessa uppskrift er...
Spaghetti, magn fer eftir því hvað þið eruð svöng
50 g af pecorino (það er hægt að nota parmesan)
4 eggjarauður
250 g af guanciale (það er hægt að nota bacon í staðinn)
Aðferð: Er reyndar ekki ennþá búinn að ná tækninni en þetta er samt alltaf bragðgott.
UPPSKRIFT 2
Ís með Nóa kroppi og karamellusósu
Ís að eigin vali
Nóa kropp
Aðferð: Eins mikið af ís og maður getur í sig látið sett í skál. Nóg af Nóa kroppi bætt í skálina og svo dass af karamellusósu ofan á ef hún er til í ísskápnum.
UPPSKRIFT 3
Amoretto Sour
1oz eggjahvíta
3/4 sykursíróp
1oz lemon
1 - 1/2oz Amaretto eða Disaronno
Aðferð: Allt sett í hristara og svo bætt klökum við. Hrista allt vel saman og bæta svo Angosture Orange skvettu ofan á.
„Eins og kannski sést á þessum uppskriftum þá er ég ennþá að mastera tæknina í eldhúsinu en það vonandi kemur einn daginn.“
Jóhann Daði skorar á Malen Áskelsdóttur og Bjarka Bernardsson að taka við næsta matgæðing.
Verði ykkur að góðu