Úrslit frá Skagfirsku mótaröðinni
Þriðja mót Skagfirsku mótaraðarinnar fór fram sl. miðvikudagskvöld í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Jesse Huijbers og Arndís Brynjólfsdóttir voru með sömu einkunn í 1. flokki fullorðinna en eftir sætaröðun dómara hafði Jesse betur og hlaut 1. sætið. Ingimar Jónsson var sigraði í 2. flokki fullorðinna og Laufey Rún Sveinsdóttir í ungmennaflokki.
Ásdís Ósk Elvarsdóttir hreppti 1.sætinu í unglinaflokki og Anna Sif Mainka Sveinsdóttir sigraði í barnaflokki.
Úrslitin voru eftirfarandi:
Barnaflokkur:
1.sæti Anna Sif Mainka Sveinsdóttir og Hlöðver frá Gufunesi - 6,29
2.sæti Björg Ingólfsdóttir og Morri frá Hjarðarhaga - 6,21
3.sæti Stefanía Sigfúsdóttir og Aron frá Eystri-Hóli - 6,13
4.sæti Freydís Þóra Bergsdóttir og Gola frá Ytra-Vallholti - 5,75
5.sæti Aníta Ýr Atladóttir og Víkingur frá Úlfsstöðum - 5,67
Unglingaflokkur:
1.sæti Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Gjöf frá Sjávarborg - 6,77
2.sæti Þórdís Inga Pálsdóttir og Drift frá Tjarnarlandi - 6,10
3.sæti Sigurður Bjarni Adnegard og Prinsessa frá Blönduósi - 5,93
4.sæti Viktoría Eik Elvarsdóttir og Signý frá Enni - 5,80
5.sæti Ingunn Ingólfsdóttir og Albert frá Vatnsleysu - 5,50
Ungmennaflokkur:
1.sæti Laufey Rún Sveinsdóttir og Ótti frá Ólafsfirði - 6,67
2.sæti Finnbogi Bjarnason og Elvör frá Djúpadal - 6,50
3.sæti Ragnheiður Petra Óladóttir og Sjöfn frá Skefilstöðum - 6,33
4.sæti Jón Helgi Sigurgeirsson og Smári frá Svignaskarði - 6,28
5.sæti Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Drífandi frá Saurbæ - 5,61
2.flokkur fullorðinna:
1.sæti Ingimar Jónsson og Garður frá Fjalli - 6,83
2.sæti Ingunn Sandra Arnþórsdóttir og Grettir frá Saurbæ - 6,75
3.sæti Guðrún Margrét Sigurðardóttir og Ópera frá Brautarholti - 6,50
4.sæti Halldór Þorvaldsson og Draupnir frá Dalsmynni - 6,08
5.sæti Eva Dögg Sigurðardóttir og Stígandi frá Sigríðarstöðum - 5,67
1.flokkur fullorðinna:
1.sæti Jesse Huijbers og Daníel frá Vatnsleysu - 6,72
2.sæti Arndís Brynjólfsdóttir og Hekla frá Vatnsleysu - 6,72
3.sæti Valdimar Bergstað og Ögri frá Kirkjuferjuhjáleigu - 6,56
4.sæti Hörður Óli Sæmundsson og Hreinn frá Vatnsleysu - 6,50
5.sæti Elvar Einarsson og Hlekkur frá Lækjarmóti - 6,44