Úrslit í Vísnakeppni gerð kunn á setningu Sæluviku

Sæluvika Skagfirðinga 2015 var formlega sett í Húsi frítímans í gær, sunnudaginn 26. apríl, og var það Stefán Vagn Stefánsson, formaður Byggðarráðs Svf. Skagafjarðar sem setti Sæluvikuna að þessu sinni. Rannveig Lilja Ólafsdóttir, nemandi við Tónlistarskóla Skagafjarðar flutti tvö lög ásamt kennara sínum Rögnvaldi Valbergssyni. Páll Friðriksson kynnti loks úrslit í Vísnakeppni Safnahússins.

Að þessu sinni sendu alls tuttugu og sex vísnavinir, botna og/eða vísur, inn í keppnina og er það um 150% aukning frá fyrra ári.

Að þessu sinni var besti vísubotn keppninnar á þessa leið:

Sé ég blik við sjónarrönd
Sæluvika kemur.
Ör og kvikur óþekkt lönd
andinn hiklaust nemur.

Eigandi botnsins er Guðmundur Kristjánsson á Akranesi.

Besta vísan um Skagfirðinginn dæmigerða hljómar svo:

Í svipnum greini létta lund
lifnar á gleðifundum.
Leikur brag á lífsins stund
lætur skeiða á grundum.

Eigandi hennar er hestamaðurinn kunni af Króknum, Guðmundur Sveinsson.

Fleiri fréttir