Úrslit ráðast í dag á Norðurlandamóti lögreglumanna

Lokaleikir Norðurlandamóts lögreglumanna verða leiknir í dag en fjórir leikir eru á dagskrá og hefst sá fyrsti nú klukkan 11 á Sauðárkróksvelli milli kvennaliða Svíþjóðar og Finnlands. Klukkan 14 munu svo kvennalið Danmerkur og Noregs leika á Hofsósvelli.

Karlalið Finnlands og Svíþjóðar munu leika á Sauðárkróksvelli klukkan 14:30 og svo eigast Danir og Íslendingar við í lokaleiknum klukkan 16:00, einnig á Króknum.

Fólk er hvatt til að fjölmenna á leikina í dag og þá sérstaklega hjá því Íslenska sem berst fyrir fyrstu stigum sínum í leiknum í dag en þeir lutu í gras fyrir Norðmönnum í gær er þeir töpuðu 3-0 í hörku leik. Þess má geta að Sigurður Jóhann Stefánsson sem starfað hefur í lögreglunni á Sauðárkróki leikur með liði Íslands.

Það er starfsmannafélag lögreglunnar á Sauðárkróki sem hefur séð um framkvæmd mótsins og að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns hefur mótið gengið vel, eina  umkvörtunarefnið er veðrið sem þeir geta lítið lagað. Stefán segir að liðin séu flest jöfn að getu og úrslitin ráðist ekki fyrr en í dag.

Stefán segir það mikinn heiður að fá að halda mótið á Sauðárkróki en það fer fram á fjögurra ára fresti til skiptis í hverju Norðurlandinu. Þetta mun vera í annað sinn sem mótið fer fram á íslandi en það var fyrst haldið hér á landi árið 1991 og því í fyrsta sinn sem það fer fram utan höfuðborgarsvæðisins.

Stefán vill koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu sem studdu við bakið á þeim við undirbúning og framkvæmd mótsins og segir að án þeirra hefði það ekki tekist.

Í kvöld verður svo slúttað á skagfirska vísu þegar slegið verður upp balli í Miðgarði með hljómsveitinni Spútnik og eru allir hvattir til að mæta og skemmta sér í bjartri vornóttinni.

Fleiri fréttir