Úrtaka fyrir KS-Deildina

Úrtaka fyrir KS-Deildina fer fram í Svaðastaðahöllinni 15. janúar 2016. Auglýst er eftir einu liði til þátttöku í deildinni. Úrtakan fer þannig fram að keppt verður í 4g. og 5g. Í úrtöku skulu mæta 2 keppendur úr hverju liði og skulu báðir ríða hvora grein. Samanlagður árangur gildir til úrslita. 

Ekki þarf að vera búið að fullmanna liðið þegar úrtakan fer fram og hafa sigurvegararnir tíma til 31. janúar til að tilkynna endanlegt lið.

Lið sem ætla í úrtöku eru beðin um að skrá sig á netfangið ksdeildin@gmail.com þar sem kemur fram nafn keppenda og hesta fyrir 10.janúar 2016. 

Allar nánari upplýsingar veitir Eyþór í síma 848-2725

Keppniskvöld KS-Deildarinnar

15. janúar - Úrtaka

17. febrúar - Fjórgangur

2. mars - Fimmgangur

16. mars - Tölt

30. mars - Gæðingafimi

6. apríl - Slaktaumatölt og skeið

 

/Fréttatilkynning frá Meistaradeild Norðurlands

Fleiri fréttir