Útboð - skólaakstur í Skagafirði
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í skólaakstur í Skagafirði. Helstu magntölur eru : Akstursleiðir í dreifbýli, lengd 315 km og 128 farþegar.
Útboðsgögn eru til afhendingar í afgreiðslu Sveitarfélagsins Skagafjarðar við Faxatorg á Sauðárkróki, frá 3. júní nk.
Frestur til að skila tilboðum er til kl. 11:00 föstudaginn 14. júní nk.
Samningslok eru áætluð vorið 2018.
Skagafjordur.is segir frá þessu.