Útgáfa "A little Trip" á Lummudögum
Á allra næstu vikum kemur út platan "A little trip" með Binna Rögnvalds - Platan samanstendur af 6 lögum sem hafa verið fullunnin í stúdíói hjá Rögnvaldi Valbergs á Sauðárkróki og hjá Helga Sæmundi Guðmundssyni í Reykjavík.
Öll lög og textar eru samansafn síðustu fimm ára og eru öll samin af Binna. Hann mun koma fram á Lummudögum í Skagafirði og vera með plötuna meðferðis sem hann muna selja á 1500 krónur stykkið. "Það er aldrei að vita nema að ég geti tekið með mér posa norður í Skagafjörðinn , en annars ef fólk hefur áhuga á að styrkja mig þá má það endilega hafa það í huga að vera með 1500 krónur á sér á Lummudögum" segir Binni
spenntur fyrir að láta sjá sig og sjá aðra á Lummudögum.