Útgáfutónleikar Fúsa Ben og Vordísarinnar í kvöld

Fúsi Ben & Vordísin, ásamt hljómsveit verða með útgáfutónleika á plötunni Tímamót - behind the mountains á Mælifelli, Sauðárkróki í kvöld kl. 21:00. Eins og flestir vita eru það Sigfús Arnar Benediktsson og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir á Sauðárkróki sem eru á bak við Fúsa Ben og Vordísina en þau hafa spilað og sungið um nokkurt skeið og getið sér góðan orðstír.

Tímamót - behind the mountains

Diskurinn er blanda af ýmsum tónlistarstefnum. Acoustic stíll yfir flestum lögunum og einlægni, sagði Silla í samtali við Feyki af tilefni útgáfu disksins í desember sl. Húsið opnað kl: 20:30 og er miðasala við inngang, miðinn kostar 1000 kr.

HÉR er hægt að nálgast lagið Fjarlægð á Soundcloud.

 

Fleiri fréttir