Úthlutun styrkja úr Húnasjóði
Byggðarráð Húnaþings vestra ákvað á fundi sínum síðastliðinn miðvikudag að styrkja fimm einstaklinga úr Húnasjóði 2016. Alls bárust sjö umsóknir en tvær þeirra uppfylltu ekki skilyrði til úthlutunar.
Samkvæmt úthlutunarreglum Húnasjóðs geta eftirtaldir fengið fullan styrk úr sjóðnum:
- Þeir sem stunda nám á háskólastigi þó ekki v/masters eða doktorsnáms.
- Þeir sem stunda fagnám til starfsréttinda sem ekki eru á samningi við vinnuveitanda í starfsgrein sinni.
- Háskólanemar- og nemar í fagnámi þurfa að vera á síðasta námsári eða að hafa lokið námi sínu til að geta fengið styrk.
Byggðarráð samþykkti að veita eftirtöldum umsækjendum styrk úr Húnasjóði árið 2016:
Guðríður Hlín Helgudóttir, nám til BA prófs í ferðamálafræði.
Kolbrún Arna Björnsdóttir, nám í japönsku máli og menningu.
Kristrún Pétursdóttir, nám til BS prófs í næringarfræði.
Sigrún Soffía Sævarsdóttir, nám til BS prófs í umhverfis- og byggingarverkfræði.
Þorgrímur Guðni Björnsson, nám til BS prófs í íþróttafræði.
Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000